Dexcom blóðsykurmælir

Dexcom blóðsykurnemi er samfelld blóðsykurmæling fyrir fólk með sykursýki. Ólíkt hefðbundinni fingurmælingu þá mælir Dexcom stöðugt blóðsykurinn og sendir blóðsykurtölu í síma eða stjórntæki á 5 mínútna fresti og myndar þannig línurit sem hægt er að skoða. Þannig sést hvort blóðsykurinn er á uppleið eða niðurleið og hægt að haga blóðsykurstjórnun eftir því.

Hver sykurnemi dugir í 10 daga og ekki er þörf að mæla blóðsykur í fingur (nema nauðsyn krefur). Dexcom er vatnsheldur og ekki þarf að gera ráðstafanir þó farið sé í heitan pott, gufu eða sund. Dexcom virkar með Apple, Samsung og nokkrum öðrum snjallsímum. Hægt að skoða blóðsykurinn og sjá graf í flestum snjallúrum.

Þú færð viðvaranir þegar blóðsykurinn stefnir í að verða hár, eða ef þú nálgast blóðsykurfall. Hægt er að stilla í hvaða blóðsykurgildi þú færð viðvaranir og einnig er hægt að stilla hringitón og hljóðstyrk á viðvörunum. Auðvelt er að stilla á „Silent“ stillingu þegar þess þarf.

Allt að 10 aðilar geta fylgt viðkomandi notanda og geta þannig séð í rauntíma blóðsykurinn í sínum snjallsíma, jafnvel þó þeir séu staðsettir fjarri þeim einstaklingi sem er með Dexcom sykurnemann.

Rannsóknir hafa sýnt að fólk með sykursýki teg. 1 sem hefur notað blóðsykurnema til lengri tíma hefur náð marktækum árangri til að lækka HbA1c gildi og bætt langtímaárangur í sinni meðferð. Eitt af markmiðum meðferðar með blóðsykurnema er að auka þekkingu notenda á sinni blóðsykurstjórnun, auka sjálfstraust í daglegum ákvörðunum og bæta lífsgæði til lengri tíma.

Skothylki tryggir örugga og auðvelda uppsetningu. Eitt „click“ og sykurneminn er kominn á húðina.

Hver sykurnemi dugir í 10 daga. Hann er vatnsheldur og hentar vel fyrir fólk sem hreyfir sig reglulega.

Nákvæmar blóðsykurmælingar allan sólahringinn. Engin þörf á að mæla blóðsykur í fingur nema nauðsyn krefur.

Sérhannaðar viðvaranir fyrir háan og lágan blóðsykur. Hægt að stilla hljóðstyrk og tegund viðvarana.

Auðvelt er að skoða upplýsingar aftur í tímann fyrir þig og heilbrigðisstarfsmann. Allt að 10 fylgjendur geta fylgt þér í rauntíma.

Hentar fyrir alla með sykursýki, fullorðna og börn frá 2 ára aldri. Dexcom er niðurgreitt af Sjúkratryggingum.

Pantanir fyrir þá sem eru með Dexcom eða Omnipod

Hafa samband